02janúar

Gott fólk :)

Þá er komið að endalokum hér á síðunni, þessi síða kannski ekki beint að henta okkur. En við erum ekki hætt því við höfum opnað barnasíðuna aftur og hvetjum við ykkur endilega til að kíkja á ykkur þar í framtíðinni :)

Slóðin að þeirri síðu er: http://www.nino.is/selmaogrobert?sida=forsida

Getið tekið afrit af þessarri slóð hér fyrir ofan og opnað annan internet glugga, límt svo og svo á enter, þá ertu komin/n :)

Hafið það sem allra best :)

Kveðja við ..
02. janúar 2009 klukkan 10:49
Geir og Ásta
Engin athugasemd
01janúar

Áriđ 2009 komiđ !

Elsku bestu vinir, fjöldskylda, félagar, klíkumeðlimir og óþekktar ormar..

Gleðilegt nýtt ár, við söknum ykkar allra voðalega mikið og vonandi sjáumst við helling á þessu spennandi ári sem frammundan er :)

Hafið það sem allra best ..

Kveðja frá okkur.. :)
01. janúar 2009 klukkan 16:20
Geir og Ásta
1 athugasemd
20desember

Tennur !

Gott fólk,

mikil tíðindi .. Selma Björt var að missa aðra tönn.. Endilega kíkið á myndir hér í mynda almbúmi frá síðunni..

Um leið langar okkur að óska ykkur öllum gleðilegra jóla og farsæls komandi árs :)

Bestu kveðjur frá Amagerfælledvej 50
20. desember 2008 klukkan 20:45
Geir og Ásta
1 athugasemd
10desember

Úffff..

Gott fólk, bloggleisi .. !!

Ég nenni ekki orðið að blogga, Ásta kann það ekki orðið lengur þannig að við erum í klemmu :) Eigum við ekki bara að heyrast á skype í staðinn ? :)


Bestu kveðjur og hafið það gott um jólin og ókomna tíma auðvitað ...
10. desember 2008 klukkan 10:12
Geir og Ásta
2 athugasemdir
31október

Gott fólk..

Jæja þá er sjöttu önn lokið eða þar að segja skóla partinum, en ég sit nú við skrifborðið mitt hjá Svendborg Architects það sem að praktíkin fer fram og skrifa þessu fínu línur hér. Annars gekk prófið vonum framar og fékk ég 12 fyrir minn snúð eða A á skala Bandaríkjamanna og allt gott með það sem sagt. Núna tekur við 10 vikna praktík og svo tekur síðasta önnin við í byrjun febrúar. En ég ætla mér strax í næstu viku að byrja leggja drög að BS ritgerðinni sem ég þarf að skila á næstu önn, og veitir víst ekki af því sú önn verður virkilega erfið og mikið umfangsefni sem þarf að skila. 
En allt gott að frétta af okkur, Ásta stendur vaktina í TopShop að vanda og stendur eins og hetja þar. Katla stendur sig rosalega vel, fékk einnig 12 fyrir samfélagsfræði próf og þykir mér það nokkuð öflugt að fá 12 fyrir slíkt verkefni því hún er jú ekki búin að vera hér nema í tæpa 3 mánuði. Selma Björt hress að vanda, fór í kveðju partý til vinkonu sinnar í gær en ein af hennar bestu vinkonum er að flytja og bauð nokkrum stelpum í mega partý, þvílíkt stuð þar. Róbert Alexander er hress og gengur rosalega vel hjá stráknum á leikskólanum, fá orð geta ekki lýst því hversu mikill söknuður við berum til hans. 

Annað, nú þegar líður að lokum náms hjá Geira hafa verið ýmsar pælingar hvað skuli taka við hjá okkur en klárlega verða kafla skifti hjá okkur, einnig þurfum við að skila af okkur íbúðinni nk sumar því við búum jú á kollegíi fyrir námsmenn. En við vorum að gæla við hvort við ættum að koma heim á Ísland og verð ég að játa að það er nú frekar mikill söknuður til staðar, okkur langar að vera til staðar fyrir okkar fólk og umkringd ykkur og því sem okkur þykir vænst um. Ennnnnnnnn í ljósi aðstæðna á markaði Íslands er nokkuð ljóst að það er búið að svifta okkur þessum möguleika í því tilliti með vinnu við fagið sem Geiri er að útskrifast við. Við erum ekki til í að fara aftur í sama far og við vorum í fyrir 3 árum ss að vinna hjá Bónus.. Ég verð að lýsa mikilli óánægju með að vera sviftur þessum kost, því að okkur langar jú að eiga valið við sjálf.... !!!
Svo les maður bara greinar á miðlum landsins að fólk sé að flýja land, hversu hvetjandi er að koma heim í slíkt ástand ? Þannig að eins og staðan er í dag búumst við að vera hér eitthvað áfram, og hver veit nema Ásta skelli sér í nám og hvað tekur í raun við ??? 

Jæja látum þetta duga í bili, og endilega skellið ykkar skoðun hér fyrir neðan, we would appreciate it ! 

31. október 2008 klukkan 08:21
Geir og Ásta
4 athugasemdir
15október

2 ára brúđkaupsafmćli..

Já kæru hálsar nær og fjær, á morgun fimmtudag 16 Oktober eigum við Ásta mín 2 ára brúðkaupsafmæli. Virðist nær ótrúlegt hvað tíminn er fljótur að líða. En það eru akkurat tvö ár síðan við vorum í Las Vegas í Elvis búninga leit fyrir Geira og spóka okkur í þessarri ótrúlegu borg. En ef við tökum létta upprifjun, þá fórum við frá Danmörku til Íslands og gistum þar eina nótt hjá foreldrum vinkonu okkar sem búa í Reykjanesbæ, en við vildum ekki að neinn af okkar fólki vissi af ferðum okkar :) Næsta dag var haldið uppá Leifstöð og ferðinni heitið til Minneapolis og þaðan í tengi flug beint til Las Vegas. Flugið með Iceland air var gott á leið til Minneapolis en flugið til Las Vegas var ekki beint spennandi og líki ég þeirri Boeing þotu á við skítugan gamlan leigubíl í New York sem aldrei stoppar. Við gistum í L.V í 4 nætur og áttum ógleymanlegar stundir og getum vart beðið eftir 10 ára brúðkaupsafmælinu en þá er planið að fara þangað aftur. En á brúðkaupsdaginn vorum við uppá hótelherbergi að taka okkur til í flottu búningana okkar og svo vorum við sótt á hótelið og keyrð í the chappel með limmósínu bara nice. Okkur tókst að skemmta þeim sem stóðu að giftingunni því þeim fannst uppá tækin okkar frekar skemmtileg, haha.. Þar var auðvitað Elvis herman góða sem að tók á móti okkur. En jæja þegar athöfn var lokið var okkur skuttlað til baka á hótelið og við steinsofnuðum uppá herbergi og sváfum yfir okkur í mat, en við áttum pantað borð á veitingastaðnum á hótelinu, þannig að við fórum bara á hlaðborðið í staðinn sem að kannski þykir ekki eins fínt þar, en við vorum í himnaríki því slíkar voru kræsingarnar.
En jámm, eftir herlegheitin í USA þá héldum við heim á leið til Íslands, en sögðum tengdó að við vorum að koma frá "Þýskalandi" með næturflugi og báðum þau um að sækja okkur. Fagnaðar fundir á Leifstöð sem aldrei fyrr, en við þögðum sem gröfin með hvað undan hafði gengið. Þegar heim í Hveragerði var komið settum við svo DVD upptöku af brúðkaups athöfninni í tækið og báðum Hrefnu um að setjast niður, því það væri svolítið sem að við vildum sýna henni, spilun í gang og spennan magnast. Eftir að Hrefna áttaði sig á hlutunum hoppaði hún hæð sýna og leit svo í átt að mér og sagði helv.. púkarnir ykkar og kíldi mig bara nokkuð fast í öxlina, en skrítið hvernig sumt fólk bregst við .. hahahahaha...
En auðvitað voru allir ánægðir fyrir okkar hönd og eru þetta ógleymanlegir tímar. En fjörið var ekki á enda, því við höfðum leigt okkur sal í miðbæ Rvkur og ákveðið að halda "teiti" fyrir vini og fjöldskyldu. Þegar fólk mætti í þetta partý rak það upp risa augu því nýbökuðu hjónin tóku á móti þeim í þessum skrautlegu búningum sem við giftum okkur í. Seinna um kvöldið var svo spiluð athöfnin við mikil fagnaðarlæti gesta.. En okkur langar líka að nota tækifærið hér með og þakka ykkur fyrir að hafa tekið þátt og verið með okkur á þessum ógleymanlegu tímum..

En nóg um það í bili, hafið það sem allra best..

Kveðja Geir og Ásta
15. október 2008 klukkan 06:12
Geir og Ásta
Engin athugasemd
13október

Selma á Íslandi !

Sæl öll, Selma er á Íslandi hjá pabba sýnum en því miður var ekki búið að ganga alveg frá heimferðinni til DK. Er einhver þarna hinum megin á leiðinni til Dk á næstu dögum og gæti hugsanlega fylgt Selmu Björt á Kastrup... ?

Endilega láta okkur vita ef þið eruð á ferðinni eða vitið um einhvern sem væri til í að fylgja henni.

Bestu kveðjur..
13. október 2008 klukkan 06:05
Geir og Ásta
Engin athugasemd
08október

Ísland í ţrot...!!

* Hvað er í gangi

Krónan fellur, kreppa yfirvofandi
Uppsagnir í stærri fyrirtækjum sem og minni
Bensín og almennar neysluvörur hækka
Dollari, evran, danska krónan og aðrir gjaldmiðlar í sögulegu hámarki
Námslánin mín duga ekki fyrir brauð og mjólk
Fólk að missa heimilin sýn
Fólk að missa bílana sýna
Ríkið yfir tekur Glitni og Landsbankann
Heimurinn veit af ástandi Íslands
Danir hafa áhyggjur af keðjuverkun frá Íslandi í Danmörku, þar sem Íslendingar eiga stór fyrirtæki þar
Kaupmenn hafa ekki efni á að kaupa inn vörur til áfyllinga í verslunum sýnum
Bónus hvetur til hamsturs á vörum og kaupum á Íslenskum vörum

* Af hverju

Gráðugir fjárfestar, vissu samt í hvað stefndi
Alheims fjárhags kreppa
Ríkistjórn sefur á vakt
Seðlabankastjórn ekki á tánum og hreinlega ekki starfi sínu vaxnir
Hver er þessi Davíð Oddson og hvað er hann að gera í Seðlabankastjóra stól ? 
Geir Haarde sagði fyrr að botninum væri náð, en þó sökkvum við enn
Gjaldeyris forði ekki nægur
Skuldir og þensla í þjóðfélaginu og mikil, sem við ekki ráðum við
Bankarnir fóru af stað með 100% fasteignalán, ekki gott  

* Áhrif

Kvíði
Ótti
Reiði og pirringur
Niðugangur
Hjartatruflanir
Blæðandi magasár
Aukin fíknefna og áfengis notkun
Hrapandi heilsa
Samband og hjónaskilnaðir
Gjaldþrot
Vaxtagreiðslur
Hækkandi lán
Glæpir 
Ofbeldi
 
* Hverjir blæða

Almenningur og saklaust fólk helst

* Hvað er verið að gera í málunum

Ný lög samþykkt  ljósi ástands á markaðnum
"Reynum að finna nýja vini"
Rússar tilbúnir að lána Seðlabanka 700 milljarða til 3-4 ára
Neibb, allt í plati .. Davíð Oddson misskildi þá þarna hinum megin við línuna, kann Davíð ekki rússnesku
Stjórn ætlar til Rússlands á næstu dögum að ræða málin
Norðmenn fylgjst með og tilbúnir að lána ef við leitum til þeirra, Af hverju leitum við ekki til þeirra frekar
Gengi krónunnar fryst, skilar sér örlítið
Guðni Ágússton vill að ríkisstjórn sendi Pútín heillasókir á afmælisdaginn hans, fyrir stuðninginn.. góður !!
Ísland hafnaði aðstoð Alþjóðagjaldeyrissjóðsins í gærkvöldi
Jóhanna mælti einu sinni svo "minn tími mun koma" er ekki rétti tíminn núna til að gera eitthvað..?

* Hvað ætti að gera í málunum

Veit ekki !!
Hef ekki hundsvit á þessu bulli
Ég vill bara geta átt fyrir salti í grautinn annað ekki

* Endilega tjáið ykkar hug hér í athugasemdir fyrir neðan.. :)
08. október 2008 klukkan 06:05
Geir og Ásta
4 athugasemdir
03október

Gleđilegan Október :)

Tíminn líður en ekki bíður er ekki svo ? hehe.. .. 

Lítið að frétta af okkur héðan frá Köben þessa dagana, massa þétt rútína hjá okkur öllum og allir farnir í háttinn klukkan tíu á kvöldin, svo er farið á fætur klukkan 6 á morgnanna.. Styttist í prófið hjá Geiranum, en prófið er mánudaginn 27 oktober og er kauði í skólanum frá 7 til 21 þessa dagana, tsss hverskonar líf er þetta ? Maður spyr sig, en þetta fer að taka enda, aðeins um það bil 9 mánuðir í útskrift.
Ásta tekur á því í vinnunni sinni, og alltaf jafn mikið að gera hjá henni þar enda hörku dugleg skvísan okkar.
Selma og Katla hressar, fara bara í sinn skóla og aðlagast dönskum siðum, tungumáli, lestri og lærdómi :) 

Málsháttur dagsins: Að þora er að tapa fótfestunni um stund, að þora ekki er að tapa sjálfum sér.


Ekkert meira svosem í bili hér, Takk fyrir innlitið og væri nú gaman að sjá komment frá þér :)

Bestu kveðjur  
03. október 2008 klukkan 05:40
Geir og Ásta
1 athugasemd
28september

Afmćliđ hennar Selmu..

Í dag var haldið uppá afmælið hennar Selmu og komu fullt af krökkum og fleirri góðir gestir til okkar í heljar veislu. Ásta búin að standa í ströngu í bakstri síðan snemma í gær og ekkert smá glæsilegt og gómsætt hlaðborð hjá kjellunni. Selma fékk fullt af pökkum og ekkert smá flottir pakkar enda hefur vart heyrst í henni enda upptekin við nýja dótið sitt. 
Allir borðuðu á sig gat og þrátt fyrir maraþon át hjá flestum þá er hellings afgangur, púheee.. Betra að vera með nóg af öllu :)  



Var einnig að setja inn nýjustu myndir af okkur og frá veislunni auðvitað, í myndir 2 hér hægra megin á síðunni.. Takið eftir myndunum af Selmu þar sem að hún sefur í skrifborðstólnum sínum, hún sofnaði þar eitt kvöldið eftir góðan dag í skólanum, bara sæt. hehe .. Endilega kíkið og væri gaman að fá frá ykkur kveðju..

Hafið það gott, kveðja ...

28. september 2008 klukkan 17:09
Geir og Ásta
3 athugasemdir

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Ţennan mánuđ: ...
  • Frá upphafi: ...

Auglýsing

Innskráningar kubbur